Íslenskar söngperlur í áranna rás
Tónleikar Vinaminni á Akranesi
Þórhildur Örvarsdóttir söngkona
Helga Kvam píanóleikari
Á dagskrá eru íslenskar söngperlur allt frá Sigvalda Kaldalóns til Megasar.
Þórhildur og Helga hafa starfað saman í nokkur ár og eru báðar í kvennahljómsveitinni Norðlenskar konur
í tónlist, þær opnuðu tónleikaröð Listasumars á Akureyri með dagskránni Íslenskar söngperlur í áranna rás fyrir fullum sal. Þórhildur og Helga eru þekktar fyrir einstakan samhljóm og skemmtilega sviðsframkomu og er óhætt að lofa góðri kvöldstund þar sem íslensku söngperlurnar í gegnum árin munu draga fram minningar þeirra sem á hlýða.
Miðasala við innganginn, aðgangseyrir kr 2500.